Tannlæknastofa Jennýjar

Traust þjónusta. Skýr ráðgjöf.

Við opnum 1. september 2026 í Þangbakka 8. Hægt er að bóka tíma hér að neðan.

Jenný Magnúsdóttir tannlæknir á stofunni
Um Jenný

Hlýlegt og traust umhverfi.

Ég heiti Jenný Magnúsdóttir og útskrifaðist frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 2011. Á árunum 2013–2018 starfaði ég í Bretlandi þar sem ég öðlaðist dýrmæta reynslu af fjölbreyttum meðferðum og starfi með fólki á öllum aldri. Frá haustinu 2018 hef ég starfað á höfuðborgarsvæðinu og samhliða því verið stundakennari við Háskóla Íslands. Þann 1. september 2026 opna ég Tannlæknastofu Jennýjar, þar sem markmiðið er að skapa hlýlegt og traust umhverfi þar sem fagmennska, vönduð þjónusta og vellíðan sjúklinga eru í fyrirrúmi. Ég legg áherslu á persónulega þjónustu, fyrir alla fjölskylduna, og að hver einstaklingur finni fyrir öryggi og góðri umhyggju frá fyrstu heimsókn.

01
Tannlæknir frá Háskóla ÍslandsÚtskrifaðist árið 2011
02
Reynsla frá BretlandiStarfaði þar á árunum 2013–2018
03
Stundakennari við Háskóla ÍslandsSamhliða störfum á höfuðborgarsvæðinu
Bóka tíma hjá Jenný →
Áhersla okkar

Fræðsla og forvarnir.

Við leggjum sérstaka áherslu á að fræða og leiðbeina sjúklingum um hvernig best sé að viðhalda góðri munnheilsu til lengri tíma.

Með reglulegu eftirliti og fyrirbyggjandi meðferð er oft hægt að koma í veg fyrir vandamál eða greina þau snemma.

Markmiðið er að skapa notalegt og traust umhverfi þar sem allir geta komið í tannlæknaheimsókn með öryggi og fundið fyrir persónulegri og vandaðri þjónustu.

Tannlæknastofa Jennýjar – fyrir alla fjölskylduna.

Viltu bóka tíma?
Til að bóka tíma fyllið út formið og takið fram tímasetningu sem óskast
Húsnæði Tannlæknastofu Jennýjar við Þangbakki 8
Húsnæðið við Þangbakki 8
Staðsetning og opnun

Auðvelt að finna okkur.

HeimilisfangÞangbakki 8
Mán.–fim.09:00–17:00
Föstudagar09:00–15:00
Ókeypis bílastæðiNæg bílastæði eru fyrir utan.
Gott aðgengiInngangur er af jarðhæð.
Opna leiðarlýsingu →
Tannlæknastofa Jennýjar

Fagleg tannlæknaþjónusta með skýra ráðgjöf og hlýtt viðmót.

Hafðu samband

© 2026 Tannlæknastofa Jennýjar. Allur réttur áskilinn.
Vefumsjón: Gonora